SÍMSVÖRUN
Orange býður viðskiptavinum sínum upp á símsvörun fyrir fyrirtæki þeirra. Við leggjum okkur fram um að kynnast viðskiptavinum okkar og starfsemi þeirra til þess að geta svarað öllum símtölum sem til okkar berast með sóma.
Við leggjum áherslu á sveigjanleika og getum sérsniðið símsvörunina að fullu leyti að þörfum fyrirtækis þíns og bjóðum upp á allar tegundir símsvörunar.
Við svörum símtölum til fyrirtækja viðskiptaina okkar eins og við séum skiptiborð fyrirtækisins, gefum símann áfram eða tökum skilaboð, allt eftir þínum þörfum og óskum.
Markvisst er unnið að því að þjónustan sé fyrsta flokks og að allir sem hringja fái úrlausn sinna mála hvort sem um er að ræða einfaldar eða flóknar fyrirspurnir. Starfsfólk fyrirtækisins leggur sig fram um að leysa öll þau mál sem inn á borð okkar berast á faglegan og farsælan hátt.
Símsvörunarþjónustunni er ætlað að auka framleiðni annarra starfsmanna þinna með því að minnka áreitið sem fylgir því að svara símhringingum. Slíkt áreiti getur truflað einbeitningu og sá tími sem fer í að svara símtölum er fljótur að safnast upp.
Hins vegar er um leið mikilvægt að svara öllum símtölum þar sem ávallt er hætta á að viðskiptavinur gefist upp eða hringi í keppinautinn þegar ekki er svarað.
PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA
Við leggjum áherslu á sveigjanlega og persónulega þjónustu. Símsvörunin er sniðin að þörfum viðskiptavina okkar og sinnt af starfsfólki sem hefur þjálfun og reynslu í símsvörun. Við kynnum okkur starfsemi viðskiptavina vel og höfum útbúið upplýsingakerfi til að halda utan um þau fyrirtæki sem eru í þjónustu hjá okkur, enda er mikil áhersla lögð á að upplýsingarnar séu ávallt réttar. Þannig tryggjum við gagnsæja þjónustu og að sá sem hringir upplifi að hann sé að tala við starfsmann sem er staddur innan veggja fyrirtækisins.
ÁREIÐANLEG ÞJÓNUSTA
Starfsfólk okkar er sérþjálfað til að svara símtölum á skilvirkan og árangursríkan hátt. Við getum ábyrgst yfir 90% svörun þeirra símtala sem berast. Svartími okkar er mun styttri en gengur og gerist og við getum ábyrgst að símsvörun þíns fyrirtækis er í góðum höndum hjá okkur.
Starfsfólk okkar er einstaklega þjónustulundað, sinnir starfi sínu vel og fær mikið hrós fyrir þá þjónustu sem þau veita.
Opnunartími símsvörunar er alla virka daga milli kl.8:30 og 17:00.
5 27 27 87 er númerið