top of page

NÝTT KAFFIHÚS Á NOTALEGUM STAÐ

Ármúlinn og göturnar í kring hafa í áratugi iðað af verslun og viðskiptum. Þar hefur þó lengi vantað almennilegt kaffihús. Orange Project hefur nú heldur betur bætt úr þessu og opnað notalegt kaffihús,
orange CAFÉ - ESPRESSO BAR, í Ármúla 4. 

 

Við bjóðum uppá eðal Illy-kaffi, te í lausu, bráðholla djúsa, bjór og sérinnflutt léttvín í hæsta gæðaflokki.

 

Við leggjum mikinn metnað í salötin okkar og efumst ekki um að hróður þeirra eigi eftir að berast víða.

Takk fyrir að hafa samband við Orange Cafe

Við opnum klukkan 8 á morgnana og það er góð byrjun á deginum að koma við í staðgóða morgunhressingu hjá okkur. Við bjóðum til dæmis upp á hafragraut og gríska jógúrt ásamt grænum djúsum og sterku engiferskoti fyrir þá sem vilja.

 

Við erum með hádegisverðaseðillinn í stöðugri þróun með spennandi rétti á boðstólum alla daga. Þar fyrir utan bjóðum við upp á samlokur, croissant, beyglur með hráskinku, hvítlauk og fleira góðgæti, kökur og handgert eðalkonfekt frá belgíska framleiðandanum Leondias, svo eitthvað sé nefnt.

 

Við leggjum mikið upp úr notalegri stemningu og að Café Orange sé þægilegur viðkomustaður í amstri dagsins, tilvalið til funda, tylla sér með tölvuna og tengjast ókeypis interneti eða bara til þess að slaka aðeins á og hlaða batteríin.

 

Við viljum að Café Orange sé frábær byrjunarreitur á hverjum degi og þægileg endastöð að kveldi. Happy hour frá 16.30 – 19.00 alla daga.

 

Við tökum þér fagnandi þegar þú kíkir við hjá okkur og vitum að þú átt eftir að koma aftur og aftur.

 

SJÁUMST – ÞÚ SÉRÐ EKKI EFTIR ÞVÍ

bottom of page