top of page

Algert frelsi í tilbúnu vinnuplássi Orange

Þú dregur úr kostnaði og hagræðir með því að greiða einungis fyrir rýmið og tímann sem þú notar

Þú getur gengið að tilbúnu vinnusvæði Orange hvenær sem er.

 

Sparaðu fé og fyrirhöfn með því að sleppa við að kaupa skrifstofubúnað.

 

  • Þráðlaust internet og WiFi eru tilbúin um leið og þú mætir.

 

  • Öll tækniþjónusta er á staðnum.

 

  • Þú hefur aðgang að viðbótarplássi, lounges, fundarherbergjum móttöku og fullkomnum fjarfundarbúnaði í HD-gæðum.

 

 

 

Frelsið er yndislegt

Frelsislausn Orange hentar þeim fullkomlega sem þurfa af og til á alvöru skrifstofuaðstöðu að halda. Þá er einfalt og þægilegt að koma sér fyrir hjá Orange, losna við að fjárfesta í skrifstofubúnaði og fastri skrifstofu og borga aðeins fyrir það pláss sem þú þarf, þegar þú þarfnast þess.

 

Allt lagað að þínum þörfum

Vinnusvæði Orange eru búin helstu nauðsynjum til skrifstofurekstrar. Internet, símar og prentar eru tengd og tilbúin um leið og þú kemur. Skrifstofurnar eru í lifandi og skemmtilegu umhverfi og starfsfólk Orange er alltaf á staðnum, tilbúið til að leysa allan þinn vanda.

Allt til alls

  • Orange-skrifstournar eru fullbúnar með húsgögnum, skrifborði, stólum og möguleika á IP-síma. Innifalið í leigunni eru þráðlaust 500mb ljóshraða internet, aðgangur að fundarherbergjum, rafmagn, eftirlitsmyndavélar, þjófavörn og tryggingar. Þá er boðið upp á prentun, skönnun, ljósritun og póstþjónustu. Kaffistofur eru vitaskuld á öllum hæðum, útibú frá Te & kaffi. Ferskir ávextir  daglega – þar á meðal Orange-appelsínur beint frá Spáni.

 

  • Við leggjum mikla áherslu á umhverfisvernd og erum umhverfisvottuð af Svaninum í bak og fyrir. Í hverri skrifstofu eru tunnur fyrir flokkað rusl og við bjóðum upp á græn bílastæði með hleðsu fyrir rafmagnsbíla. Þá erum við með gott pláss fyrir reiðhjól og gott aðgengi fyrir fatlaða. Þrif á skrifstofunum eru einnig innifalin og hægt er að laga þau að þörfum hvers og eins.

     

 

Skiptiborð Orange er opið frá 9:15-12:00 og 13:00-16:00 alla virka daga og aðgangur að skrifstofum er opinn allan sólarhringinn, alla daga ársins.

 

Finndu þá skrifstofu sem hentar þér best og hefur svo samband við okkur í síma 5 27 27 87 og við hjálpum þér að finna réttu lausnina. Þú getur síðan hafið störf samdægurs.

Skrifstofurnar

 

Orange-skrifstofurnar henta fyrirtækjum, einstaklingum og félagssamtökum sem vilja losna við óþarfa yfirbyggingu. Hjá Orange ertu laus undan öllu venjubundnu amstri skrifstofurekstrar. Við sjáum um allt fyrir þig og þú getur einbeitt þér að verkefnum þínum, áhyggjulaus í notalegu og björtu umhverfi. Við hugsum í lausnum – fyrir þig og erum sveigjanleg á öllum sviðum. Hvort sem þig vantar fullkomna skrifstofu í klukkustund eða ár þá erum við með lausnina fyrir þig.

 

 

Þú borgar bara fyrir það sem þú þarft
 

Helsti kosturinn við Orange-skrifstofurnar er að þú færð það sem þér hentar best og borgar fyrir það, hvorki meira né minna. Við erum með tilbúnar skrifstofur af öllum stærðum og gerðum og þú getur hafið störf strax í dag. Laus undan öllum hefðbundnum skrifstofurekstri getur þú hámarkað afköst starfsfólks þíns, í því plássi sem þér hentar best.

 

bottom of page